Kaffi-Sel ehf. er staðsett í golfskálanum að Efra-Seli. Fyrirtækið rekur golfvöllinn og veitingareksturinn í golfskálanum. Kaffi-Sel ehf. byggir á grunni rekstrarins sem hófst í gamla golfskálanum árið 1985. Þá var veitingastaðurinn staðsettur þar sem 4. teigur Selsvallar er í dag. Í fyrstu var um að ræða kaffi og kökur, en smátt og smátt var boðið upp á fjölbreytari veitingar. Fyrirtækið er í eigu Ástríðar G. Daníelsdóttur og Halldórs Guðnasonar, ábúenda á Efra-Seli.